Keyptu á netinu og sparaðu

Samstaða og samfélag

Eitt af grundvallargildum Flyover er virðing fyrir samfélaginu.

Það er með stolti sem við styðjum við það fjölbreytta samfélag sem Ísland byggir og bjóðum upp á sérverð til almannaheillahópa sem við teljum deila með okkur ástríðu fyrir menntun, inngildingu og tengingu við samfélagið. Þannig viljum við þakka þeim sem á óeigingjarnan hátt hjálpa til við að skapa betra samfélag.

Senda fyrirspurn

Skilyrði fyrir almannaheillahópa

Til að nýta sérverð fyrir almannaheillahópa þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

Hópurinn sé á vegum félags sem er á almannaheillaskrá Skattsins eða sé sannanlega hluti af sjálfboðaliðahópi, ungmenna- eða eldri borgara samtökum.

Hópurinn telji a.m.k. 10 gesti

NÁNARI UPPLÝSINGAR

  • Sérverð til almannaheillahópa er ekki í boði á almennum frídögum.
  • Sérverð til almannaheillahópa eru aðeins í boði fyrir hópa sem telja 10 eða fleiri gesti.
  • Hver fullorðinn einstaklingur má að hámarki hafa umsjón með 9 börnum.
  • Ganga þarf frá greiðslu fyrirfram til að tryggja bókun.
  • Breytingar og afbókun má gera með allt að 72 tíma fyrirvara án þess að til greiðslu komi.
  • Til að taka þátt í sýningu Flyover þurfa gestir að hafa náð 100 cm hæð
  • Ef þið missið af bókuðum tíma þarf að bóka nýjan tíma sem tekur mið af bókunarstöðu hverju sinni.

Vinsamlegast lesið heildarskilmála okkar fyrir frekari upplýsingar.

BYRJUM AÐ SKIPULEGGJA

Það er auðvelt að skipuleggja heimsókn í Flyover Iceland:

  1. Sendu inn fyrirspurn
  2. Við heyrum í þér og ræðum þarfir hópsins, verð og bókunarstöðu
  3. Þú staðfestir bókunina og við sjáum um rest

Hvort sem þú ert að skipuleggja vettvangsferð með skólahóp, ert ferðaskipuleggjandi, með íþróttalið á þínum snærum eða með sérstakan viðburð í bígerð er starfsfólk okkar boðið og búið að aðstoða við að gera heimsóknina ykkar einstaka og eftirminnilega.