Keyptu á netinu og sparaðu

Stórbrotin upplifun framundan

Leyfðu Íslandi að koma þér á óvart

Flyover bætir nýrri vídd við Íslandsævintýrið. Upplifunin færir þig nær stórbrotinni náttúru Íslands og sýnir þér landið frá nýju sjónarhorni. Flyover sameinar það besta af Íslandi, bæði á jörðu sem á himni.

Í sýningu í Flyover Iceland

Sögur sem lyfta þér upp

Um leið og þú stígur inn fyrir dyr Flyover opnast þér undraheimur. Þú leggur af stað í ferðalag sem færir þig nær stórbrotinni náttúru, áhugaverðu fólki og ólíkum menningarheimum. Og forvitnin vaknar hjá stórum sem smáum.

Virkjaðu öll skilningavit

Svífðu yfir, inn í og um einstaka staði í upplifun sem virkjar öll skilningarvit. Hreyfingar, hljóð, ilmur og sjónræn áhrif vinna saman og láta þér líða eins og þú sért á flugi. Þannig sérðu heiminn frá nýju sjónarhorni og upplifir hann á einstakan hátt.

Þar sem tónlist og ævintýri mætast

Enginn staður er eins og þess vegna skapar Flyover algjörlega einstaka upplifun fyrir hvern stað sem við könnum. Hjá Flyover Iceland upplifir þú hina goðsagnakenndu fegurð Íslands frá alveg nýju sjónarhorni með Legendary Iceland áður en þú svífur niður milli skýjakljúfa Chicago-borgar með Believe Chicago.

Hannað til að hrífa

Hver áfangastaður á sína sögu og því er sérhver Flyover upplifun einstök. Í Flyover Iceland ferðu í ferðalag yfir stórbrotna náttúru landsins en Believe Chicago fer með þig á svigflug milli skýjakljúfa í hjarta Chicago.

Sögur af Flyover

Sjáðu, lærðu og leyfðu þér að dreyma

Kanna málið nánar

Hvar erum við?

Flyover Iceland er á Grandanum í Reykjavík. Það er auðvelt að komast til okkar, hvort sem er fótgangandi, akandi eða í strætisvagni.

Staðsetning og bílastæði