ÆVINTÝRAÁRIÐ HEFST HÉR OG NÚ!

Njóttu þess að upplifa töfra Flyover Iceland allan ársins hring með árskorti. Þú flýgur yfir stórbrotið landslag og náttúruundur eða iðandi mannlíf stórborga. Þú leyfir ævintýraþránni að ráða för og ekkert stoppar þig í að fljúga aftur og aftur.

Sem stendur er eingöngu hægt að kaupa árskort í afgreiðslu Flyover Iceland, Fiskislóð 43. Ef þú átt erfitt með að komast á staðinn getur þú sent okkur línu á [email protected] og við björgum málinu.

Verðlagning

Fullorðnir | 14 990 ISK

14 ára og eldri.

​​​​​​​Börn | 9 990 ISK

13 ára og yngri.
Guests must be at least 102cm (40”) tall to ride. Please note Children 13 and younger need a guardian of at least 14 years old.

Ótakmarkaður aðgangur að Flyover á Íslandi

Fylgdu ævintýraþránni með árskortinu og njóttu ótakmarkaðra flugferða í eitt ár.

Afsláttur

15% afsláttur af sýningum fyrir samferðafólk og sami afsláttur í verslun Flyover.

Afsláttur á kaffihúsi

15% afsláttur af mat og drykk á Flyover Café

Skilmálar árskorts Flyover 

  1. Árskort Flyover („kortið“) gildir í 365 daga frá kaupdegi („gildistímabil“).
  2. Kortið veitir handhafa aðgang að Flyover Iceland (á Íslandi) á hefðbundnum opnunartíma.
  3. Kortið fæst ekki endurgreitt og er óframseljanlegt. Misnotkun getur leitt til ógildingu kortsins.
  4. Kortið gildir aðeins fyrir staka miða og gildir ekki fyrir sérstaka viðburði eða pakka (t.d. afmælispakka, fyrirtækjaviðburði eða aðra sérstaka viðburði samkvæmt skilgreiningu Flyover hverju sinni).
  5. Kortið gildir ekki fyrir hópa og hefur ekkert reiðufjárgildi.
  6. Óleyfilegt er að endurselja eða skipta kortinu út fyrir önnur verðmæti. Brot getur leitt til ógildingu kortsins.
  7. Árskortshafar verða að fylgja stöðluðum siðareglum fyrir gesti Flyover til að tryggja öryggi og vellíðan annarra gesta, starfsmanna og samstarfsaðila.
  8. Árskortshafar þurfa að framvísa gildum skilríkjum með mynd í hvert skipti sem þeir nota árskortið.
  9. Engin takmörk eru á fjölda skipta sem nota má árskortið á gildistíma þess.
  10. Árskortshafar geta notað kortið eins oft á dag og bókunarstaða Flyover leyfir.