Keyptu á netinu og sparaðu

Hópupplifanir

Fljúgðu hærra með hópinn þinn — bókstaflega!

Flyover býður upp á einstakt ævintýri, hvort sem þú ert að skipuleggja fámenna afmælisveislu eða risa viðburð með yfirtöku á öllu húsinu. Flyover Iceland hentar fólki á öllum aldri og fyrir hvers konar samkomur. Við tökum hlýlega á móti skólahópum, fyrirtækjahópum, vinahópum – alls konar hópum – og sjáum til þess að okkar frábæra sýndarflug þjappi hópnum vel saman og skilji eftir ógleymanlega minningu.

Stórt eða smátt, látlaust eða með glæsibrag – ævintýri hópsins byrjar hér.

Flugtak. Töfrar. Lending með hjartað fullt af minningum.

Senda fyrirspurn

Hópupplifanir

Hópar og einkaviðburðir

Sama hvers eðlis viðburðurinn er þá breytist hann í fljúgandi stórskemmtun í Flyover Iceland. Stór hópur kallar á stórt ævintýri. Hópurinn flýgur yfir stórbrotið landslag og upplifir ógleymanleg augnablik. Fullkomið fyrir hvers konar veislur, endurfundi eða bara þegar gengið þitt er í stuði til að fljúga hærra.

Afmælisveislur

Fagnaðu með pompi og pragt! Afmælisveislur hjá Flyover eru allt í senn spennandi, óvenjulegar og fullkomlega ógleymanlegar.

skolahopar

Lærðu á flugi! Börn og unglingar fá algerlega nýja sýn á samfélagsfræðikennsluna þar sem þau fljúga yfir landslag, menningarhópa og náttúruundur.

Almannaheilla hópar

Hjá Flyover Iceland bjóðum við hópa sem þjóna samfélaginu okkar á einn eða annan hátt sérlega velkomna. Hér fara góð málefni svo sannarlega á flug.

Gjafabréf fyrir fyrirtæki

Gefðu ævintýralega gjöf! Miðar í Flyover Iceland eru frábær gjöf fyrir starfsfólkið, viðskiptavinina eða samstarfsaðila. Magnafsláttur fæst þegar keypt eru 50 eða fleiri gjafabréf. Einföld og eftirminnileg gjöf.

Samstarfsaðilar í ferðaþjónustu

Flyover Iceland er fullkomin viðbót við hvaða dagskrá sem er. Við bjóðum upp á ævintýralega sýningu sem hentar öllum aldurshópum, auðvelt er að pakka inn með öðrum ferðum og allir brosa hringinn þegar út er komið. Tilvalið fyrir bæði hópa og einstaka ferðalanga.

BYRJUM AÐ SKIPULEGGJA

Það er auðvelt að skipuleggja heimsókn í Flyover Iceland:

  1. Sendu inn fyrirspurn
  2. Við heyrum í þér og ræðum þarfir hópsins, verð og bókunarstöðu
  3. Þú staðfestir bókunina og við sjáum um rest

Hvort sem þú ert að skipuleggja vettvangsferð með skólahóp, ert ferðaskipuleggjandi, með íþróttalið á þínum snærum eða með sérstakan viðburð í bígerð er starfsfólk okkar boðið og búið að aðstoða við að gera heimsóknina ykkar einstaka og eftirminnilega.