Legendary Iceland
Sjáðu stórbrotna náttúru Íslands frá alveg nýju sjónarhorni. Svífðu yfir land elds og íss þar sem eldfjöll, jöklar, saga og þjóðsögur lifna við. Uppgötvaðu falda fjársjóði og upplifðu þekktustu náttúruperlur landsins á hátt sem fáir fá tækifæri til. Fullkomin byrjun á Íslandsævintýrinu. Eða eftirminnilegur endapunktur þess.
Legendary Iceland
Svífðu til lands elds og ísa. Láttu hrífast með og kannaðu undur hins ósnortna Íslands.
Saga, Goðafræði & Náttúra
Fylgstu með SúVitru, heimiliströlli Flyover, á meðan þú kannar hlutverk náttúru, tíma og mannkyns í mótun sögu Íslands. Frá eldfjöllum og jöklum til víkinga og trölla — þetta er ferðalag sem hefur verið í mótun í aldaraðir.
Skoðaðu Ævintýralegt Landslag
Firðir, fossar og svartar sandstrendur bíða þín. Uppgötvaðu goðsagnakennda staði um þessa stórfenglegu þjóð, allt frá afskekktum hornum norrænnar sveitar til iðandi gatna miðborgar Reykjavíkur.
Söngvar Norðursins
Samið og flutt af virtum tónlistarmönnum, þar á meðal meðlimum hinnar goðsagnakenndu post-rock sveitar Sigur Rós, lyftir frumsamin tónlist Legendary Iceland upplifuninni á enn hærra plan með því að fanga kjarna eyjunnar.
Ekta Ísland
Með því að vinna með listamönnum, flugmönnum, tónlistarmönnum og öðrum samstarfsaðilum á staðnum lagði Flyover-teymið metnað sinn í að skapa ekta upplifun sem Íslendingar eru stoltir af að kalla sína eigin.