Árskort Flyover („kortið“) gildir í 365 daga frá kaupdegi („gildistímabil“).
Kortið veitir handhafa aðgang að Flyover Iceland (á Íslandi) á hefðbundnum opnunartíma.
Kortið fæst ekki endurgreitt og er óframseljanlegt. Misnotkun getur leitt til ógildingu kortsins.
Kortið gildir aðeins fyrir staka miða og gildir ekki fyrir sérstaka viðburði eða pakka (t.d. afmælispakka, fyrirtækjaviðburði eða aðra sérstaka viðburði samkvæmt skilgreiningu Flyover hverju sinni).
Kortið gildir ekki fyrir hópa og hefur ekkert reiðufjárgildi.
Óleyfilegt er að endurselja eða skipta kortinu út fyrir önnur verðmæti. Brot getur leitt til ógildingu kortsins.
Árskortshafar verða að fylgja stöðluðum siðareglum fyrir gesti Flyover til að tryggja öryggi og vellíðan annarra gesta, starfsmanna og samstarfsaðila.
Árskortshafar þurfa að framvísa gildum skilríkjum með mynd í hvert skipti sem þeir nota árskortið.
Engin takmörk eru á fjölda skipta sem nota má árskortið á gildistíma þess.
Árskortshafar geta notað kortið eins oft á dag og bókunarstaða Flyover leyfir.